11. þáttur: Hvernig var hér suður með sjó árið 1872?
Skólinn í Vatnsleysustrandarhreppi, sem nú er Sveitarfélagið Vogar, er þriðji elsti barnaskóli landsins, hefur starfað samfellt í 150 ár, frá 1872, alla tíð í eigin húsnæði og stundum á 2 stöðum samtímis. Í Reykjavík reis skóli aðeins áratug fyrr, sem starfað hefur samfleytt.
150 ár eru u.þ.b. 6 kynslóðir. Hugsanlega hefur langalangalang -afi eða -amma lesendans verið meðal fyrstu nemenda skólans!
Það var öðruvísi um að litast hér fyrir 150 árum, aðrir lífshættir og ólíkar aðstæður. Hér var þéttbýlt á þess tíma mælikvarða, byggð með mestallri ströndinni frá Hvassahrauni að Vatnsnesi við Keflavík, ef Njarðvíkur eru taldar með. Hér var mikil árabátaútgerð vegna nálægðar við góð fiskimið og einnig gerð út þilskip (skútur) að sumarlagi á fjarlægari mið. Á útmánuðum flyktist vertíðarfólk hingað svo fólksfjöldinn gat tvöfaldast. Þjappað var í híbýlin og einnig búið í verbúðum.
Farið var að byggja vegleg hús hér í sveit á þessum tíma. Þá þóttu steinlímd hús flottari en torfhús. Síðari hluta átjándu aldar og þá nítjándu stóðu Danir fyrir byggingu steinlímdra húsa, fyrst Viðeyjarstofu 1755, síðan Hóladómkirkju, Bessastaðastofu, Nesstofu, Stjórnarráðshúsið, Viðeyjarkirkju, Landakirkju, Bessastaðakirkju og dómkirkjuna í Reykjavík, allt laust fyrir 1800.
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg var byggt 1871. Sama ár byggir Sverrir Runólfsson, fyrsti lærði íslenski steinsmiðurinn, steinhús í Stóru-Vogum, líklega fyrsta steinhúsið í einkaeigu, sjá nánar á ferlir.is. Rúst þess stendur enn á lóð Stóru-Vogaskóla, börnum að leik, sjá mynd. Síðan voru byggð hér fleiri minni steinhús, m.a. útihús.
Timburhús voru unnvörpum byggð hér þegar mikið framboð varð af góðu timbri úr strandi seglskipsins Jamestown í Höfnum árið1881, en það var fulllestað gæðatimbri. Í kjölfarið reis stærsta sveitakirkja landsins á Kálfatjörn 1893.
Margt breytist á 150 árum. Skólinn okkar var stofnaður tveimur árum áður en kóngurinn kom hingað með stjórnarskrá (sem við notum enn að nokkru leyti). Þarna eru líka harðindaár þegar margt fólk flúði land til Vesturheims, til að freista gæfunnar þar, þó líklega ekki margir úr okkar sveit.
Þó tíðarfar og afli væri misjafn á 19. öld efldist efnahagur og íbúum fjölgaði. Þar réð miklu að margir bændur eignuðust jarðir sem áður höfðu verið eign kirkjunnar og Viðeyjarklausturs og síðar konungs, svonefnt Viðeyjargóss. En efnahagur var afar misjafn og kann sú misskipting að hafa verið hvati þess að séra Stefán Thorarensen drífur í því að stofna hér skóla fyrir alla, en ekki síst þá sem minna máttu sín.
Þorvaldur Thoroddsen náttúrufræðingur (1855-1921), sem fór rannsóknarferðir um allt land, fór hér um 1884 og lýsir byggðinni þannig:
"Hverfi eða þorp eru hér alls staðar fram með sjónum og mjög mannmargt, enda er hér einhver hin mestu fiskiver á Íslandi. Bændur voru og margir efnaðir og byggingar hvergi jafngóðar á Íslandi: svo að segja eintóm timburhús, vel vönduð og útbúin, þó voru gamaldags kofar innan um á stöku stað. Þó nú útvegsbændur væru margir ágætlega vel efnaðir, þá var þó mikill fjöldi af blásnauðu fólki innan um og meiri munur á efnahag manna en víða annars staðar.“
Aðalheimild: Grein Árna Daníels Júlíussonar: Frumgerðir sjávarþorpa. Einnig bók Hauks Aðalsteinssonar: Út á brún og önnur mið. Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar 2022.
- Starfsmenn
- Matseðill
- Stefnur og áætlanir
- Bókasafnið
- Skólasöngurinn
-
150 ára saga
-
Þættir úr sögu skólans
- 1. þáttur: Þriðji elsti barnaskóli sem enn starfar
- 2. þáttur: Torchillii-sjóður og skóli fyrir alla
- 3. þáttur: Fjölþætt starf á 56 fermetrum
- 4. þáttur: Upphafsmaðurinn Stefán Thorarensen
- 5. þáttur: Séra Stefán og stofnun skólans
- 6. þáttur: Skólamenntun á Íslandi frá upphafi
- 7. þáttur: Meira um Thorkillius, Jón Þorkelsson
- 8. þáttur: Elstu barnaskólar landsins
- 9. þáttur: Barnaskóli í Keflavík frá 1887 eða fyrr
- 10. þáttur: Áður en skólinn kom til
- 11. þáttur: Hvernig var hér suður með sjó árið 1872
- 12. þáttur: Vatnsleysustrandarhreppur sjávarþorp á 19. öld?
- 13. þáttur: Skóli einnig stofnaður í Garðinum árið 1872
- 14. þáttur: Ögmundur Sigurðsson, merkur skólamaður
- 15. þáttur: Skólar á Suðurnesjum 1890
- 16. þáttur: Fyrsti vetur skólans á Vatnsleysuströnd
- 17. þáttur: Fyrstu kennararnir - ungir menn á uppleið
- 18. þáttur: Kennarar um aldamótin 1900
- 19. þáttur: Margir skólar, mörg skólahús í sömu sveit
- 20. þáttur: Skólakerfi í mótun um aldamótin 1900
- 21. þáttur: Námsgögn - frá allsleysi til ofgnóttar
- 22. þáttur: Kennslan á Vatnsleysuströnd um 1900
- 23. þáttur: Vatnsleysuskólinn og Ingibjörg Erlendsdóttir
- 24. þáttur: Úr dagbók kennara í Vatnsleysuskóla
- 25. þáttur: Árni Theodór 1910-1920 - og ófarir skólanefndar
- 26. þáttur: Svo kom kennslukona með kennarapróf
- 27. þáttur: Í skólanum hjá Viktoríu
- 28. þáttur: Landsins fyrsti skólabíll - öll kennsla á einum stað
- 29. þáttur: Nýtt og betra hús Brunnastaðaskóla
- 30. þáttur: Skóli, þinghús og samkomuhús
- 31. þáttur: Ungmennaskóli - miðskóli - gagnfræðaskóli...
- 32. þáttur: Íþróttir og sundkennsla
- 33. þáttur: Skólinn fluttur í Voga
- 34. þáttur: Hvernig var í skólanum 1970-1990?
- 35. þáttur: Félagslíf - Skólaferðalög
- 36. þáttur: Afmælishátíð 1. október 2022
- 37. þáttur: Tónlistarkennsla í 150 ár
- 38. þáttur: Mynd- og handmennt og heimilisfræði
- 39. þáttur: Skólinn, umhverfið, náttúran
- 40. þáttur: Samfélagið og skólinn
- 41. þáttur: Erlend mál og tengsl við útlönd
- 42. þáttur: Lesa, skrifa og reikna í 150 ár
- 43. þáttur: Menntun og skemmtun kennara
- 44. þáttur: Þrautseigir kennarar
- 45. þáttur: Fólk í skólasögu Voga
- 46. þáttur: Jólahald í 150 ár og sögulok
- 47. þáttur: Fleira fólk í 150 ára skólasögu Voga - í stafrófsröð
- 48. þáttur: Fjöldi íbúa og nemenda fyrstu 150 ár skólans
- 49. þáttur: Heimildir
- 50. þáttur: Lokaorð - um þessi skólasöguskrif
- Myndir og verk nemenda
-
Þættir úr sögu skólans