Farsæld barna

Farsæld barna

Samþætting - tengiliður farsældar

Þann 1. janúar 2022 tóku í gildi ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsælar barna eða svokölluð farsældarlög. Meginmarkmið laganna er að veita snemmtæka íhlutun og að allir sem að barninu koma, tali saman. Er sveitarfélögum ætlað þrjú til fimm ár til að innleiða slíkt fyrirkomulag. Þeir sem bera ábyrgð samkvæmt lögum þessum skulu:

  • Fylgjast með velferð og farsæld barna og foreldra og meta þörf fyrir þjónustu.
  • Bregðast við þörf barna og foreldra fyrir þjónustu á skilvirkan hátt um leið og þörf krefur.
  • Hafa samráð sín á milli með það að markmiði að þjónusta sé samfelld og samþætt í þágu velferðar og farsældar barna og foreldra

Í lögunum er kveðið á um stigskiptingu á þjónustu; fyrsta, annað og þriðja stig. Þannig er gert ráð fyrir að öll þjónusta í þágu farsældar barna sé veitt á þremur þjónustustigum. Fyrsta stigið er aðgengilegt öllum börnum og foreldrum en um er að ræða einstaklingsbundinn snemmtækann stuðning. Fyrsta stigið er nýnæmi í lögum og verður mesta kerfisbreytingin þar. Á öðru stigi er markvissari einstaklingsþjónusta (t.d. liðveisla, barnaverndarvinnsla) og á þriðja stigi er þjónustan orðin mun sérhæfðari (þyngri barnaverndarvinnsla, innlögn). Markmiðið með lögunum er að draga úr og fækka alvarlegri málum.

Tengiliður Stóru-Vogaskóla er Elva Björk Elvarsdóttir elva.elvarsdottir@vogar.is s: 440-6250

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School