4. mars 2025

Bekkjakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7.b

Bekkjakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7.b

Í dag, 4. mars fór bekkjarkeppni Stóru upplestrarkeppninnar fram í Stóru-Vogaskóla. Eftir frábæran lestur nemenda á sögunni Víti í Vestmannaeyjum eftir  Gunnar Helgason og völdum ljóðum eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Braga Valdimar Skúlason, settust dómarar keppninnar yfir það vandasama hlutverk að velja þá þrjá sem munu keppa fyrir hönd skólans á lokahátíð keppninnar síðar í mars. Þau sem voru valin til þátttöku í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar voru Birna Rán, Eyþór Breki og Brynja Margrét.

Óskum við þeim til hamingju með árangurinn.

Í lokakeppninni, sem fram fer hér í Tjarnasal Stóru-Vogaskóla þann 20. mars, munu þau etja kappi við nemendur er báru sigur úr bítum úr Gerðaskóla og Sandgerðisskóla.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Grænfáninn
  • Mentor
  • Twinning School