20. desember 2019

Litlu jólin

Litlu jólin

Föstudaginn 20. desember verða LITLU JÓLIN haldin hátíðleg í skólanum. Á litlu jólunum reynum við að hafa notalega jólastemningu og það er skemmtilegt ef börnin geta komið í betri fötunum. Skemmtunin hefst með stofujólum kl. 10:00 þar sem hver nemandi mætir til umsjónarkennara í heimastofu. Börnin mega koma með kerti að heiman og stöðugan kertastjaka. Stofujólin hefjast með því að kveikt er á kertum og kennari les jólasögu á meðan börnin borða saman. Nemendur mega koma með gos/djús og kökur eða sælgæti.

 

Að lokum er lukkupökkum dreift.

Þennan dag koma börnin með jólapakka (innihaldið má ekki kosta meira en 1000 kr). Gætið þess að gjöfin geti verið fyrir stelpu eða strák.

 

Kl. 11:00 er farið inn á sal þar sem gengið er í kringum jólatréð og sungin jólalög. Litlu jólunum lýkur kl. 11:30 og þar með hefst jólafrí í skóla og frístund.

 

Athugið að enginn hádegismatur verður þennan dag. Foreldrar og systkini eru velkomin á jólaballið ef þau hafa tök á, yngri systkini verða að koma í fylgd fullorðinna.

Jólafrí hefst að loknum litlu jólum.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School