17. desember 2021

Litlu jólin

Litlu jólin

LITLU JÓLIN 17. des.

Skemmtunin hefst með stofujólum kl. 10:00 þar sem hver nemandi mætir til umsjónarkennara í heimastofu. Börnin mega koma með kerti að heiman og stöðugan kertastjaka. Stofujólin hefjast með því að kveikt er á kertum og eiga nemendur og umsjónarkennari notalega stund saman. Nemendur mega koma með gos/djús og kökur eða sælgæti.

Að lokum er lukkupökkum dreift.

Þennan dag koma börnin með jólapakka (innihaldið má ekki kosta meira en 1000 kr). Gætið þess að gjöfin geti verið fyrir stelpu eða strák.

1.-4. bekkur eru einu bekkirnir sem munu dansa í kringum jólatréð í sal og syngja jólalög. Fyrst dansa 1.-2. bekkur á milli 11:00-11:15 og svo 3.-4. bekkur á milli 11:15-11:30.

Litlu jólunum lýkur kl. 11:30 og þar með hefst jólafrí í Stóru-Vogaskóla og Frístund.

Skólinn hefst aftur að loknu jólafríi 3. janúar 2022. Þetta er skertur dagur og er byrjað kl. 9:40 samkvæmt stundaskrá og eftir þeim reglum sem verða í gildi þá.

Okkar bestu óskir um gleðileg jól og þakkir fyrir samstarfið á árinu.

Starfsfólk Stóru-Vogaskóla

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School