30. september 2021

Verkefnið Skólaslit - saga eftir Ævar

Verkefnið Skólaslit - saga eftir Ævar

Í október munu nemendur í 4.-10.bekk taka þátt í lestrarupplifun ásamt nemendum í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum, sem Ævar vísindamaður mun stýra ásamt kennsluráðgjöfum. Áherslur verkefnisins sneru í upphafi að drengjum og lestri og var því gerð könnun í vor sem verkefnið byggir á en auðvitað á þetta verkefni við bæði drengi og stúlkur. Verkefnið hefur þróast út í nýstárlega lestrarupplifun með áherslu á skapandi og verklega vinnu ásamt því að áhugasvið og hugmyndir nemenda fái að njóta sín í verkefnavinnunni.  

 

Verkefnið er í raun saga eftir Ævar, sem ber heitið SKÓLASLIT og birtist á síðunni https://www.skolaslit.is/ á hverjum degi í október og mun 1.kafli birtast á föstudaginn 1.okt. Nemendur munu taka þátt í verkefninu á skóladögum en við hvetjum ykkur foreldra/forráðamenn, til að taka þátt í verkefninu um helgar og væri þá hægt að skrá það sem heimalestur. Einn kafli birtist á hverjum degi og lýkur sögunni á hrekkjavökunni, en sagan er hrollvekja fyrir börn og unglinga. 

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School