7. apríl 2020

Lausar stöður grunnskólakennara í Stóru-Vogaskóla

Lausar stöður grunnskólakennara í Stóru-Vogaskóla

Stóru-Vogaskóli óskar eftir að ráða grunnskólakennara í eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár:

· Textíl

· Sérkennslu

· Smíði

Stóru-Vogaskóli er 170 barna grunnskóli þar sem skólastarf er í senn metnaðarfullt og faglegt. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi í skólanum. Í skólanum er góður starfsandi og hefur skólinn að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki.

Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð við fjölbreytta náttúru. Stóru-Vogaskóli er Grænfánaskóli.

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Leyfisbréf til kennslu, skal fylgja umsókn

· Kennslureynsla á því stigi sem sótt er um

· Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður

· Færni í samvinnu og teymisvinnu

· Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum

· Ábyrgð og stundvísi

· Áhugi á að starfa með börnum

Launakjör eru samkvæmt kjarasamning Kennarasambands Íslands.

Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á póstfangið skoli@vogar.is fyrir 21. apríl 2020.

Nánari upplýsingar veita Hálfdan Þorsteinsson skólastjóri og Hilmar Egill Sveinbjörnsson aðstoðarskólastjóri í síma 440-6250

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School