1. september 2021

Berjatínsla

Neysla berja og matjurta í skugga eldgoss

      

Nú þegar haustar hafa margir það fyrir sið að fara í berjamó. Við í Stóru-Vogaskóla höfum einmitt nýtt þessa frábæru “kennslustofu” sem umhverfi og náttúra Voganna er. Meðal annars höfum við lært um ýmsar plöntutegundir og notið ávaxta þeirra. Í móanum vaxa krækiber en einnig finnast á völdum stöðum bæði bláber og hrútaber. Nú þegar mengun fá eldgosinu í Geldingadölum hefur legið hér yfir þá efuðumst við um hversu heilsusamlegt það væri að neyta berja úr móanum í nágrenni Voganna. Við höfðum því samband við Umhverfisstofnun og Matvælastofnun sem sögðu berin örugg til neyslu, en rétt væri að skola þau eins og annað grænmeti og ávexti. Efni eins og brennisteinsdíoxíð (SO2) sem kemur frá gosinu myndar súlfít þegar það kemst í snertingu við vatn/raka, en súlfít er notað sem aukaefni í mörgum matvælum. Efnin setjast aðallega utaná ber og lauf, en skolast auðveldlega af með rigningu og vatni. Hins vegar eru súlfít þekktir ofnæmisvaldar og geta matjurtir af svæðinu verið varasamar fólki með óþol fyrir súlfítum í matvælum.

 

Guðrún Kristín, náttúrufræðikennari

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School