1. nóvember 2020

Áríðandi tilkynning

Kæru foreldrar/forráðamenn

Sveitafélagið Vogar í samráði við skólaskrifstofu okkar hefur ákveðið að hafa skipulagsdag í grunnskóla, tónlistarskóla og frístundastarfi mánudaginn 2. nóvember vegna hertra sóttvarnareglna stjórnvalda til varnar COVID-19.
Mánudagurinn 2. nóvember verður notaður til að skipuleggja starfið með kennurum og öðru starfsfólki.
Grunnskólabörn eiga því ekki að mæta í skólann mánudaginn 2. nóvember en nánari upplýsingar um skólastarfið verða sendar frá skólunum til foreldra og forráðamanna um áframhald skólastarfsins. Skóla- og frístundastarf mun hefjast aftur með breyttu sniði þriðjudaginn 3. nóvember.

  • Vogar
  • Saft
  • Heimili og skóli
  • Barnaheill
  • Mentor
  • Twinning School